Blogg
25.3.2008
Draugaganur í tölvunni minni
Það er bara fyndið þegar örin fer af stað í miðju bloggi og rennur til vinstri í skrikkjum og svo upp og hringsnýst yfir bakkpílunni. Það segir mér að hér er eittvað spennandi á ferðinni. Greinilegt að ég má ekki segja ykkur of mikið. Guðjón, við þyggjum boðið og ég skal segja þér allt!!!! Kannski er einhver hérna sem ekki á að vera að lesa bloggið mitt. Fy på dig!!!!
Eitt sem miðilinn sagði var að þegar einhver er búin að "opna" og læra þessa reikiheilun þá er mikilvægt að vera duglegur að nota þetta. Það er víst annars líklegt að maður verði pirraður og súr ef þessi orka er ekki notuð.
Svo að þegar þið komið í sumar verð ég að "æfa mig" á ykkur! Haha.
Hér er bara frost og snjór. Reindar var sól í dag og flott gluggaveður fyrir ketti eins og mig. Gott að hafa nóg að gera inni enda ætla ég að vera með á "marknaden" í vor og kynna mig og mína "list" Var að skeyta öskjulok í allan dag og er ekki búin. Ég er með ellefu öskjur og nota efni í grunnin og skreyti svo með allskonar glingri. Bara gaman að þessu enda nota ég mikið bleikt og fjólublátt. Smá dúkkur, fiðrildi, blóm,hjörtu, skordýr og margt annað.
Núna er ekki mánuður í íslandsferðina. Flug og lestarmiðar komnir í hús og spennan getur farið að byggjast upp. Hitti Yvonne aðeins áðan og hún er orðin ansi spennt. Bara gott mál. Hún hefur varla farið í ævintýraferð síðan hún átti börnin.
Unna semeraðhugsaumaðfaraaðlæraíhugunþáverðakannskifleiritímarísólarhringnum
23.3.2008
Gleðilega páska!
Það er búið að vera haust í allan vetur og svo kom smá vor um síðustu helgi og ég fór að potast í garðinum og þá skall veturinn á. Það er búið að vera 10 stiga frost eða eitthvað svoleiðis. Kannski bara sex stig. Allavega kallt. Allt á kafi í snjó. Sem c páskahretið. En hey, dagurinn er bara miklu lengri. Þetta stendur kannski ekki lengi. Nýja pannan er sko kynt í botn svo að það er hlýtt og gott inni.
Hér er annars allt í rólegheitunum.
Ég fór til miðils á skírdag og var það ekki alveg eins og ég hafði hugsað mér. Ég ætlaði sko að fá að vita eitthvað um fyrri líf og kannski hitta einhvern framliðinn. Svo vildi vég auðvitað vita hvert ég ætti að stefna í framtíðinni.Ég fór með Yvonne. Hún sá um að panta fyrir mig og keyrði mig. Þegar við komum þangað kemur þessi fallega kona út á móti okkur og lítur á mig og segir " Ég þekki þig samt veit ég að ég hef aldrei hitt þig áður!" Ég heilsa henni með handarbandi að góðum íslenskum sið og hún segir má ég fá hendina þina aftur. Ég tek aftur í hendina á henni og hún brosir svo fallega og segir " það er eitthvað spennandi þarna" Svo býður hún okkur inn. Ég komst inní forstofu og þ´´a segir hún við skulum bara byrja! Ok segi ég og við förum í litla húsið þar sem hún er með starfsemina.
Hún segir mér að setjast í annann endan á sóffanum og svo kveikir hún á kertum og setur á músik. Hún sest svo niður í stól við hliðina á sóffanum og spyr mig svo hvort ég eigi kött. Nei ég á engan kött. Hún sér kött. ég hef átt tvo ketti. Hún segir að þetta sé frekar úfinn köttur. Ég sagðiv þá að ég væri Ljón og þá brosti hún og sagði að ég þyrfti að eiga kött og ég væri að eignast kött annaðhvort norskan skógarkött eða persneskan kött.
Svo skoðar hún áruna mína og segir að ég það sé eitthvað að mér í heiladinglinum og það er frá skjaldkyrtlinum og það er það sem er að pirra augun. Hún segir að ég hafi enga orku í fótunum og í hægri hendinni. Vinstri hendin og bolurinn eru ok.
Hún spyr hvort hún megi jafna orkuna í orkustöðvunum mínum. Auðvitað mátti hún það. Ég leggst á bekkinn og hún tekur fram pendil og svo ligg ég þarna með lokuð augun hlusta á hana. Þegar hún talar um solar plexus byrja ég að sjá liti renna upp frá nefinu og yfir augun "Dökk fjólubláann" aðallega og er stöðugt rennsli og svo kemur bleik brydding á litinn og rautt í miðjuna og alveg appelsínugult líka. Vá þetta var svo flott og góð tilfinning.
Ég segi ekki frá því sem gerðist svo, en ég fer allavega á reikiheilunar námskeið í vor.
Þegar ég var að fara þá spurði ég hvort þessi köttur myndi falla í fandið á mér fljótlega? Hún glotti og sagði að mér yrði boðinn hann og þá sagði ég en hvað um hundinn? Hún lifir það af.
Unna semermeðansimargarhugsanirnúna!
12.3.2008
Hún er "hundleiðinleg"
Það er alltaf sami þeytingurinn á mér um allt. Fundir hingað og þangað og keyra unglingana hingað og þangað.
Unna semerekkiíbloggstuði
3.3.2008
Það er langt síðan að
að mér hefur verið svona kallt eins og á laugardaginn!
Jonni og Jón Helgi voru að skifta um pönnu hérna og auðvitað þurfti að "snjóa". Það var enginn hiti á húsinu í tvo sólarhringa. Fyrri daginn var það svo sem allt í lagi og voru gullin mín hérna og við vorum að leika okkur í gelluleik. Þær voru með naglalakk þegar þær komu og mormor var búin að kaupa "eyrnalokka" sem eru límdir á eyrun og með þeim fylgdu hringar. Ekki voru þeir nothæfir, það var ekki hægt að minnka þá svo þeir verða að bíða notkunnar í mörg ár. Við leystum þetta bara með því að búa til marga hringa. Einn á hvern putta!
Eru þær ekki flottar!
Í gær var orðið svo kallt í húsinu að ég fór til Dönu og var með gullin þar. Hún var alveg á kafi í lærdómi og ég sat þar og bróderaði enda gullin lasin . Tiffany svaf lengi og Tara dúllaði sér með að lita.
Dana kláraði að læra um fjögurleitið og ég fór heim í frystikistuna. Það var einsog að koma í sumarbústað um hávetur. Ég segi nú eki að það hafi verið frostrósir á gluggunum en ansi kallt og rakt. Rigning úti (snjórinn farinn). J og JH voru þá byrjaðir að hita en einhver blandari eða ventill virkaði ekki eins og hann átti að gera og einhver dæla gaf upp öndina svo að kerfið virkaði ekki eins og það á að gera svo að ylurinn kom ekki fyrr en um miðnætti.
Ég hitaði kamínuna rauðglóandi og var bara ljúft að sitja í stofunni en restin af húsinu var eins og tjaldbúðir um votqa verslunarmannahelgi!
Svona lítur þetta kerfi út
Það á eftir að smíða kassa kringum tankana og einangra allt. En þetta er bara flott.
Bankinn samþykkti að lána mér pening enda konan bara "góður pappír".
Unna semerbarakvefuðognennirekkiaðbloggameira
p.s. einhverjir örðuleikar við að koma inn albúmum á nýju tölvunni. Kanna það síðar

