Blogg

23.4.2008

Ég á að kaupa 12 tennisbolta!!!!

Ekki láta ykkur detta það i hug að ég ætli að fara að spila tennis. Nei, Mamma á að fá þá undir eldhússtólana sína!!! Kannski undarlegt að hugsa sér stóala á boltum. Það verður gert gat á þá og löppunum stungið ínní boltana. Þá renna þeir svo mjúkt á gólfinu og rispa elkki þó að tapparnir séu dottnir undan. Þetta er gert í mörgum skólum hérna.

Ég er búin að vera á fullu síðustu vikur. Fyrst að gera klárt fyrir markaðinn ogh það gekk bara vel! Seldi bara þokkalega!

Aron er í Borás í skólanum og líkar ofsalega vel núna. Eftir fyrstu nóttina vildi hann bara koma heim en starfsfólkið á nemendaheimilinu tók hann að sér og þá hvarf heimþráin. Hann vill sko byrja þarna í haust!!!!

David er orðinn spenntur fyrir þessum slóla og vill byrja þarna líka og fara á Hotel og Resturang braut. Ef hann greinist með Asperger þá á hann rétt á að byrja þarna. Bara leggjast á bæn og krossa fingur!!!

Ég hef verið síðustu tvo dagana í garðinum enda geggjað veður!!! 15 stiga hiti og sól.
Núna var ég að þvo og hengja út og svo þarf ég að pakka niður og muna eftir öllu!!!!

Unna semerskokominíferðahugogalles

Skrifað 23.4.2008 kl. 11:00 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

13.4.2008

Brjálað að gera!!!!

Ég er á fullu að klára það síðasta sem ég geri fyrir markaðinn um næstu helgi. Blogga meira um það seinna.

Dana er á íslandi núna og við vorum með öll gullin eina helgi. Jón Helgi var þar þegar hún kom. Sebastian er hjá okkur núna. Hann er að vísu hjá Markusi þessa helgi. Litla skinnið að eiga svona leiðinlegan pabba. Hann vildi sko alls ekki fara og það þurfti að múta honum til að fara þangað.

Núna eru tæpar tvær vikur í íslandsferðina. Fimmtudaginn 24 apríl lendum við galvaskar í Keflavík. Við erum orðnar ansi spenntar. Skruppum saman í Borás á föstudaginn til að kaupa hitabrúsa frá Termos handa mömmu og Yvonne keypti garn handa henni. Góð ferð. Hið skemmtum okkur alltaf svo vel saman.

"Litlu drengirnir" hafa verið í þrælabúðum síðustu dagana. Vinnan á viðnum er byrjuð og er það ekki amalegt að hafa þrjá þræla! 10 rúmmetrar í þriggja metra lengdum, sem þarf að saga í 50 cm og kljúfa svo í mátulega bita, Þetta fær svo að þotna í sumar og verður svo í águst að stafla í stæðu. Bara gaman.

Við stræakarnir fengum magapest í síðustu viku og vorum mislasin. Ég slapp best. Gubbaði ekki enda er það vesta sem ég veit.

Veðrið er ansi misjafnt snjór, rigning, sól og þoka skiftast á að reina að hafa yfirhöndina. Svona er þetta þegar blessað vorið er að koma. Fuglasöngur og vorblóm. Bara gott. Bráðum nær góða sumarið hingað. Ég er svo mikil vor og sumarkona. Leiðist haustið og hata veturinn.

Aron fer á morgun til að prófa nýja skólann. Hann verður þar allavega í eina viku. Kannski tvær. Það er búið að samþykkja að hann þurfi þetta skólaform. Bara frábært.

Unna semefáfulluaðbíðaeftiröllu

Skrifað 13.4.2008 kl. 8:02 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu