Blogg
31.5.2008
Allt að gerast núna!!
Það hefur ekki rignt hérna síðan ég kom frá Íslandi og allur gróður hefur bara tútnað út. Kannski af því að ég hef vökvað á hverju kvöldi. Gott að hafa eiginn brunn og sterka dælu!!!
Ég hef verið úti frá morgni til kvölds og ekki nennt að blogga. Ég hef líka brugðist illa við þessum hraða á vorinu og fengið "kvef" eða "ofnæmisviðbrögð" allavega renna augun meira og ég hnerra og hósta.
"Altanbyggingin" verður að veruleika núna!!!!! Jonni er búinn að stinga upp grasið fyrir sunnan húsið ég er búin að panta möl og kemur hún eftir helgina.

42,5 fermetrar!!! Þetta getur bara ekki verið betra.
Í gærkvöld fórum við og keyptum fyrsta gluggann!

Þessi flotti þrefaldi gluggi verður á vestur hliðinn ásamt hurðinni sem við kaupum á eftir.

Flott eða flott?
Ég kaupi 10 svona glugga og verða tveir á austurgaflinum og átta á suðurhliðinni. Það eru bara til 10 svo þessi þrefaldi varð fyrir valinu þar sem hann var í Tranemo og stutt að sækja hann. Hurðin og hinir gluggarnir eru í Jönköping og skellum við okkur þangað um hádegið.
Þetta er bara gaman. Núna get ég farið að teikna altanið og sækja um byggingarleyfi. Ég hringdi og talaði við bæjararkitektinn í gær og það eru þrjú eyðublöð og tvær teikningar sem þarf að skila inn og svo er bara að byggja. Gaman, gaman. Gott að eiga þrjá stráka sem er hægt að þræla út.
Við bættum við möl í heimkeyrsluna og var Alex bara flottur á skóflunni

Hann er búinn að klára núll áfangann í skólanum og stóð sig mjög vel. Hann náði Reikningnumrétt eftir jólin og enskunni nokkru seinna og í gær fékk hann að vita að hann náði sænskunni! Bara flottastur!!! Hann er sennilega með einhverja skrifblindu svo það hefur gert allt erfiðara. Núna er komið að verðlaununum. Hvað haldi þið að hann vilji? TATTO!!!! Ég var búin að lofa því að ef hann næði þessu fengi hann að setja á sig tatto. Ég verð að standa við það.
Það er klárt með skólann hjá Aroni. Hann byrjar í skóla í Borás í haust og verður á nemendaheimilinu mánudag til föstudags. Það eru góðar líkur á að David byrji þar líka í haust. Kemur í ljós eftir næstu viku. Spennandi.
Unna semeráfulluaðkaupagluggaogbúinaðteiknaaltaníhuganumoginnréttaþað!!!!
P.s.
Nýjar myndir komnar

14.5.2008
Loksins blogg
Það er bara búin að vera algjör Bongóblíða síðan ég kom heim. Hef ekki nennt að blogga. Valið að vera úti í sólinniog er alveg að komast í hópinn "Hobbynegrar"
Íslandsferðin var alveg stórkostleg!!!!! Sól allan tímann, sennilega hef ég komið með hana með mér.
Ferðin byrjaði í frábæru veðri hér í Svíaríki, ég í sandölum og ermlausum kjól. Lestarferðin var alveg frábær. Það er ekkert smá gott að sitja bara í afslöppun og ferðast hratt. Litla Sunna Alexandra var með okkur og var reglulega skemmtilegur ferðafélagi. Við þurftum að skifta tvisvar um lest og þegar við vorum komnar í lest númer tvö vildi hún að við myndum skifta aftur bráðum. Ég sagði henni að við myndum skyfta eftir svona klukkutíma. Þá segir sú stutta. Mamma mín segir að það er bráðum. Ég spurði hana hvað er bráðum, hún svara "eftir svona klukkutíma". Bara fyndin.
Við komum bara tímanlega á Kastrup og allt gekk vel við innskráninguna. Í flugvélinni borðaði sú stutta slatta af smarties og svo sofnaði hún og svaf sætt þar til eftir lendinguna. Hún hefði sko alveg verið til í að sofa lengur. Amma Marta tók svo á móti henni og skutlaði okkur Yvonne til mömmu.
Föstudagurinn fór allur í að hvíla okkur og að gera neglur á mig. Við fórum svo í kv0ldmat til Guðjóns og Ingu. Lambalæri. Ekkert smá gott og eftirrétturinn var algjört æði. Takk aftur fyrir matinn. Við keyrðum svo aðeins í áttina að golfvellinum og sáum Gróttuvitann. Guðjón lánaði okkur bílinn sinn. Guðjón, takk æðislega!
Laugardagurinn fór í afslöppun fyrir hádegið og Yvonne fékk neglur eftir hádegið. Um kvöldið fórum við til Sigrúnar og skelltum okkur í smá göngutúr um miðbæinn í Hafnarfyrði. Ekki mundum við hvað gamli skemmtistaðurinn hét. Ég held að það hafi heitið Vitinn. Við skelltum okkur á kaffihús og fengum okkur bjór og vatn. Hver drakk vatnið? Ég! Við skruppum svo til að skoða íbúðina hjá Svandísi og Ásdís var þaðr líla. Gaman að hitta þessar flottu og sætu stelpur. Við stoppuðum ekki lengi. Ég þurfti endilega að ná myndum af sólarlaginu og það tókst þrátt fyrir mikið rok. Ótrúlegt hvað rok getur gert lundina létta. Allavega grenjuðum við úr hlátri á meðan. Hallandi bakinu upp í vindinn og reina að reykja. Það var nánast ómögulegt. Ég hljóp í hlé við bílinn og smellti mynd af gellunum. Hún er að vísu hreyfð en stemmingin leynir sér ekki.

Stórsjór á bakvið!
Á sunnudeginum fórum við austur og skoðuðum Kerið, Gullfoss og Geysi. Yvonne var alveg heilluð og vildi eiginlega setjast að við Strokk. Hún var alveg heilluð. Ég fór aðeins innfyrir böndin í kringum hverasvæðið og þar á meðal stóðum við smá stund við gamla Geysi. Ég sagði henni að hann væri alveg dauður. Hún tók eftir einhverriólgu og leist ekki á blikuna og sagði að þaðværi eftir öllu að hann byrjaði að gjósa bara af því að við stóðum þarna. Við fórum svo í sjoppuna og í búðina á bakvið og þar var okkur sagt að gamli Geysir pusar úr sér svona sirka tvisvar á sólarhring. Hann er víst búinn að gera það síðan eftir skjálftann 2000.
Frá hverasvæðinu fórum við auðvitað heim að Króki og var vel tekið á móti okkur og eins og alltaf. Yvonne skildi bara ansi mikið af því sem Magga sagði. Yva treysti sér ekki til að tala íslensku og bað mig að segja eitthvað sem ég man ekki við Möggu og ég gerði það og Magga var hálfskrítin á sviðinn og Yva sagði þú verður að tala íslensku við hana. Ég hafði þá bara skellt sænskunni á Möggu. Hvað við hlógum. Bara gaman. Við vorum svo leistar út með gjöfum. Við fengum þessa flottu glerkertastjaka sem Magga gerir og ég fékk "húsgafl" sem heitir núna Krókur og verður settur í glugga á verðandi altani hérna.
Mánudagurinn var vel notaður í Bláa lóninu og vorum við alsælar þarna í volgu vatninu með sólina og rokið í andlitið. Algjört æði.Við notuðum fossinn alveg óspart enda er það bara ótrúlega gott nudd. Litli ferðafélaginn fékk að fara með og skellti hann sér í leirbað.

Hann var alveg ótrúlega hrifinn. Það var erfitt að ná leirnum af honum. Bara gaman. Það er spiladós í honum og þagnað gún við b aðið. Þegar hann var orðin vel þurr heyrðist í honum aftur, bara lægra.
Við skelltum okkur svo til Keflavíkur og borðuðum góðan tælenskan mat. Það var á dagskránni að hitta Gunnrúnu og börnin en enginn var heima, allavega svaraði enginn í símann svo ég hringdi í Lóu og steina og vorum við velkomnar þangað. Við sátum lengi og spjölluðum um reiki og margt annað. Við vorum leistar út með gjöfum. Yva fékk málverkið "Mar grét" og ég fékk "íslenska konan" Takk Lóa!!!
Á þriðjudaginn var stenan á Þingvelli og Palli sagði að Nesjavallaleiðin væri mikið flottati svo við fórum hana. Það var sko flott. Við ætluðum auðvitað að skoða virkjunina. Þegar við komum þangað stóð á skilti að einungis væri hægt að skoða þetta í júní, júlí og ágúst. Við alltaf jafn heppnar. Þarna var samt stór rúta og töluvert af krökkum . Við stormuðum inn og þar var spurt hvað okkur vantaði. Ég sagði að við hefðum haldið að það væri opið. Konan sagði að það væri opið á Hellisheiði. Ég svaraði að við værum á leiðinni á Þingvll. Skellið ykkur þá baraúpp á þriðju hæð og skoðið. Við létum ekki segja okkur þetta tvisvar. Þetta er ekkert smámannvirki. Þeger vi'ð komum niður aftur og ég var að þakka konunni , rak Yva augunn í myndaalbúm og þar var sko "Royallinn" Kalli kóngur og Sylvía og við þóttumst vera í góðum félagsskap. Að lokum spurði ég konuna í hvaða átt ég ætti að fara til Þingvalla. Unna áttavilta getur ekki farið eftir leiðbeiningum og fór vitlausu megin við vatnið. Það var nú ekki verra, því að við sáum ótrúlega flotta sýn. Restin af klakanum á vatninu hafði safnast í litla vík og öldugangurinn
og rokið léku í klakanaum eins og músik og kristall. Meiriháttar flott. Við lentum svo við kirkjuna á úlfljótsvatni og er flott að sjá þessa litlu kirkju umkringda leiðum sem virðast vera á leiðinni út í varnið.
Eftir að hafa bankað uppá hjá bóndanum, fékk ég að vita að það var bara að halda áfram sem og við gerðum og komum að Lögbergi og stoppuðum bara lengi við Öxarárfoss og "sumir" (ég nefni engin nöfn en fyrsti stafurinn er Unna) voru á Silfurskóm

Miðvikudagurinn fór í smá búðarráp og afslöppun. Um kvöldið vorum við í mat hjá Sigrúnu. Hún var með alveg geggjaðann fiskrétt og ég sem er almennt ekki mjög hrifin af fisk var alveg heilluð og bað um uppskriftina. Takk Sigrún!!!
Fimmtudagurinn var algjört ævintýri. Sigrún fékk þá snjöllu hugmynd að koma okkur í Riwerrafting og fékk Ásdísi í lið með sér. Þetta tókst og við lögðum af stað í sól og smá golu. Við áttum að vera konar að Drumboddstöðum seinast klukkan korter yfir eitt. Við vorum komnar klukkan eitt og eitthvert besta ævintýri sem ég hef upplifað byrjaði. Fyrst voru fundin föt á okkur. Kafarabuxur upp að öxlum og vindheldur stakkur yfir þær (Sigrún lánaði okkur ullarnærföt, sem betur fer). Svo fengum við flotgalla yfir allt saman. OK þetta heitir eitthvað annað en leit út eins og gúmmí. Þegar allit voru komnir í skrúðann var "hoppað" (lesist skrönglast) inní gamlan skólabíl frá vellinum og keyrt upp að Brúarhlöðum. Þar þurftum við sex sem vorum í bátnum að bera bátinn (lesist ferlíkið) í fimm mínútur að ánni. Hvernig haldið þið að það hafi verið og það gleraugnalaus. Rokið gerði það að augun í mér táruðust og mér fannst eins og ég væri Michelinkallinn og sá ekkert hvar ég setti niður lappirnar. Bara fyndið eftirá. Allavega tókst okkur að skrönglast þetta hálf úr axlaliðnum. Svo byrjaði gamanið. Þetta er ólýsanlegt. Á miðri leið var stoppað og þar stóð okkur tið boða að hoppa fram af 4-5 metra háum kletti ofaní ána.

Já þetta er ég að hoppa!!!!

Þarna er ág á floti og náði ekki andanum.
Nú veit ég hvernig þetta er. Ég geri þetta ekki aftur. En samt var þetta algjört æði. Reindar var vatnið ansi kallt. Bara 4 gráður. Ég á eftir að lif á þessu lengi. Takk Sigrún og Ásdís Dögg fyrir að redda þesssu!!!!!!
Fstudagurinn fór í afslöppun og að pakka niður fyrir heimferðina sem gekk ótrúlega vel þá að flugmaðurinn hafi kannski ekki verið sá öruggasti

Bara Djók!!!
Unna semendurlifðiíslandsferðinameðbrosávör!!!!!
P.s. Fullt af nýjum myndum!!!!