Blogg
24.12.2008
Gleðileg jól
Vá fimmtugustu jólin mín!!!!
Við verðum heima í kvöld og höfum bara einn jólagest. Yvonne verður í mat og svo fer hún með okkur í kaffi til Dönu.
"Litlu drengirnir" eru ekki að nenna að standa í að hafa barnaleg jól og vilja bara að við séum hérna heima svo að þeir þurfi ekki að bíða lengi eftir þessum fáu pökkum sem þeir fá. Ég skil það svo sem og er ekki búin að gleyma að ég nennti ekkert að vera að fara og gera neitt á þessu kvöldi, vildi bara vera í friði með bækurnar sem ég fékk í jólagjöf. Ég man sko alveg eftir að hafa lesið alla nóttina ein jólin enda fékk ég þá einar fimm bækur.
Núna eru það tölvuspilin sem gefa lífinu gildi og er það kannski ekkert verra allavega fyrir þá sem höfðu líflegt ímyndunarafl. Það má auðvitað deila um þetta eins og allt annað.
Heyrumst kannski um hátíðarnar
Unna semerfarinaðskúraeldhúsgólfið
2.12.2008
Ökklabrotin
Steig svona illa á þröskuld og því miður var næsta gólfi 20 sentimetrum neðar og Voila brot í melleolen sem er víst kúlan utanaá ökklanum. Ekkert alvarlegt en hund vont. Ökklinn alveg hrikalega bólinn og blár. Þetta á víst að lagast á þremur vikum.
Alltaf jafn heppin!!!
Annars er allt þokkalegt hérna, smá snjór og jólastemming. Ég ligg bara í sóffanum og hef það gott.

