Blogg
3.2.2009
Klofin niður að öxlum
Ég á mér svo mörg áhugamál að ég veit eiginlega ekki hverju þeirra ég á að einbeita mér að. Tíminn er bara ekki nægur til að sinna þeim öllum.
Ég keypti mér þessa flottu stafrænu myndavél og fer ekki neitt án þess að taka hana með mér. Mér fannst ég þurfa að sauma mér flotta tösku til að hafa græjurnar í og þá var auðvitað annað áhugamál virkjað, skapa og sauma. Saumavélin bilaði og ekki tókst mér að klára þessa flottu svampfóðruðu, vasamörgu tösku! Þá mundi ég eftir að vídeo-vélin var í flottri tösku og auðvitað nota ég hana núna. Video-vélin er ekkert notuð enda orðin úreltur fimmtánára forngripur,
Jonni lagaði svo saumavélina enda er hann algjör þúsundjalasmiður.
Sköpunagleðin fór svo á fullt og ég ætlaði að fara að sauma þessa flottu poka sem jólabókin frá Önnu frænku gaf mér hugmynd að. Ég byrjaði á að gera mynd í tölvunni og kaupa mér svona pappír í prentarann til að geta straujað mynd á efni. Hvað gerist!!!! Jú helv..... spóluhylkið er horfið!!!!!! Ekkert hægt að sauma!!!! Þá var bara að byrja að leita. Ég finn þetta stykki ekki. Búin að leita allstaðar!!! Taka hobbyherbergið mitt í öreindir, en áranguslaust. Svo það var bara að panta nýtt. 175 SEK kostar það og það á að fara með póstinum í dag frá DK.
Aron er í skóla í Borás og höfum við orðið að keyra hann á mánudögum og sækja á föstudögum það sem af er vetrar en síðustu tvær vikur hefur hann farið með rútu og er loksins kominn smá aukatími aflögu og þessvegna er ég að blogga. Nei smá djók. Ég hef bara ekki verið svo jákvæð og þá blogga ég ekki!
Kannski er vorið að koma eða eitthvað, ég er allavega jákvæðari núna og set hérna eina fyndna mynd af David og Aron

Bara fyndnir!
Er að fara til Borás í dag til að sinna enn einu áhugamálinu Reikihealing. Það eru tvær sem vilja taka á móti heilun og ég er ennþá bara byrjandi og þarf að æfa mig. Bara gott fyrir mig. Það er alveg ótrúlegt hvað þetta virkar vel á mig. Ég fæ auka orku og ekki veitir af í skammdeginu.
Love á línuna
Unna semerfarinísturtu