Blogg

27.3.2009

Útsölur eru stórhættulegar!

Europris búðirnar eru að hætta hérna og ég var stödd í Borás í gær og ákvað að kíkja á úrvalið. Það var nú ekki mikið eftir.  Fann samt flottan pappír handa mér og garn handa mömmu. Allt með 50% afslætti. Þarna var líka slatti af verkfærum og ég var að leita að einhverju sem Jonni gæti notað. Ég fann ekkert sem hann bráðvantaði, nema kannski hníf. Ég hef stolist í hnífana hans og misþyrmt þeim. Ég teygði mig í einn flottan með bláu skafti og dró hann úr hulstrinu og Whoops ... Tókst að skera mig hressilega í þumalinn. Ég keypti EKKI hnífinn, heldur fór á slysó og það þurfti að rimpa eitt spor í puttann.

Annars er alltaf nóg að gera hérna. Við erum búin að kaupa fimmtán rúmmetra af við. Það er helmingurinn af því sem við ætlum að kaupa. Það þarf bara að raða þessu í stæðu. Það verður ekki gert alveg strax, Gott að láta viðinn þorna smá áður.

Krókusarnir snjóuðu á kaf í nótt, en vonandi verður þetta hvíta ógeð ekki lengi!!!

Unna

Skrifað 27.3.2009 kl. 4:52 af

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu